Hér eru allir hressir
Krúsídúllurnar á Barnalandi
Klukkan
Dagsetning
19. mars 2010
26.02.2007 16:34:04 / Punky

Hrokafull

Ég fæ oft á tilfinninguna að ég geti breytt heiminum til hins betra. Ég veit að ég er ekki betri en aðrir en mér líður oft þannig. Ég er ekki ein um að vera hrokafull.

Ég vil samt ekki halda að heimurinn geti ekki skánað.


» 1 hafa sagt sína skoðun

01.02.2007 21:54:56 / Punky

Arna, Arna og Ragga

Stelpurnar komu hérna áðan og gáfu mér afmælisgjöf. Nei ég á ekki afmæli.. en þær höfðu víst ekki gefið mér afmælisgjöf þegar ég átti afmæli fyrir nokkrum mánuðum (ég mundi það ekki). Þær gáfu mér og Árna sæng og kodda hvor :D Ég var geðveikt ánægð með þetta þar sem sængurnar og koddarnir okkar voru bara ekki að gera sig.. haha. Þannig að þær fara uppí sumarbústað (nógu góðar fyrir það :D)

Takk Arna, Arna og Ragga :D

» 0 hafa sagt sína skoðun

26.01.2007 09:29:01 / Punky

Tinna löggildur sumarhússeigandi (sumarhúsaeigandi?)

Ég og Árni fjárfestum í húsi á Hvammstanga. Um er að ræða innréttaður skúr sem bróðir ömmu átti. Hann dó fyrir nokkrum mánuðum og skyldi eftir sig hús og bíl. Þau sem erfðu hlutina voru fjögur systkini sem eru öll komin á áttræðisaldur og nenntu engan veginn að standa í þessu veseni í að þrífa og selja. Við keyptum þetta bara eins og hann skyldi það eftir.. með öllu. Ísskáp, sófasett, rúm, tveimum skápum og ýkt flottu ljósbláu '85 lödunni sem er ekin 35.000 km. Haha.. það verður gaman að sjá hvort hann virkar. Hann var seinast keyrður og skoðaður 2001 án athugasemda.. þetta er allt spennandi. Núna þarf ég bara að fara að verka flugur :)

Mikið rosalega er ég ánægð með þetta allt saman ég segi ekki annað



» 5 hafa sagt sína skoðun

19.01.2007 16:52:56 / Punky

blogg

Ég veit ég veit.. dálítið tilfinningaklám á ferð.. en engu að síður ætla ég að láta þetta inn.

Vissuði að ungbarnadauði er frekar hár hér á landi? Ekki það að ég setji þetta ljóð endilega í samhengi við það.

Ljótur veruleiki Í vímu,
í skít og reyk
áttu þau lítinn ástarleik
en þau gleymdu góðum sið
og líf kviknaði í móðurkvið.

Allt sem hún átti í mánuði níu
var hass og pípa með skítuga síu.
Hún var marin og með bláa bauga
verðandi móðir með glóðurauga.

Loks fæddist lítill drengur
gullmoli var hann og lífsins fengur.
En lítill friður var með þessum sálum
því ekkert breyttist í hennar málum.

Hún leit ekki á lífið sem mömmuleik
hún þurfti meira - bæði vín og reyk.
Og þrátt fyrir ásakanir og skammir
voru vatnssoparnir ætíð rammir.

Og þegar hana fór að langa
gleymdi hún munninum svanga.
Hún læddist á hverju kvöldi út
og hunsaði alla ábyrgð á litla kút.

Það var köld og dimm vetrarnótt
hann var svangur og með hitasótt.
Einn í félagslegu steyptu skjóli
grét hann eða svaf í mömmubóli.

Svo kom hún heim í morgunsárið
og sá hvar glitraði á barnstárið,
sem staðnað hafði á kaldri kinn
hún faðmaði aldrei framar drenginn sinn.

Líf barnsins lagði hún að veði fyrir skammvinna,
ómerkilega gleði fallegu augun mun hún aldrei aftur sjá
sem hún elskaði heitar en hægt er að tjá.

Alla daga eftir stóð hún stjörf og stíf
það hafði verið tekið frá henni allt líf.
Hún var full af sorginni dimmleitri,
því hún kæfði barnið sitt með eitri.
Tvö líf fórust þessa nótt
því afskaplega kyrrt og hljótt
en þó féllu þau með ólíkum hætti
féllu þau fyrir fíknarmætti.


» 2 hafa sagt sína skoðun

13.09.2006 17:34:37 / Punky

Kaffistofan lokar

Ég veit ekki alveg hvað mér finnst um þetta: www.visir.is/apps/pbcs.dll/article?AID=/20060913/FRETTIR01/109130099&SearchID=73256762787799 Ég vorkenni ekki fyllibyttunum og dópistunum. Ég held´að ég í mörgum tilvikum séu alkahólistar, virkir, vegna þess þeir komast upp með það. THERE.. I SAID IT! Takk fyrir mig

» 5 hafa sagt sína skoðun

10.09.2006 13:43:17 / Punky

Kárahnjúkar, vinna, myspace og glerbrot!

Kárahnjúkar voru æði! Ég vil ekki þetta land undir vatn. Ég ætla aldrei að fara út fyrir bæjarmörkin héðan af. Rosarosa gaman að fara allar saman. Myndir koma fjótlega hjá henni Ragnheiði. Við erum ekki sexý á þeim myndum.

Ég fékk glerbrot í fótinn í gær. Ég var á ellefunni að dansta þegar ´það stakkst þetta þvílíka beitta glerbrot í gegnum sólann á skónum og inní fótinn á mér! Ég fann ekkert fyrir því en mig grunaði að þetta gæti ekki verið neitt rosalega gott. Öskraði víst "FOKK" og fór að ná í hjálp :P
Ég fór bakvið þar sem einhver gaur tók á móti mér. Ég náði einhvernveginn að segja honum að ég væri meidd (svo mikill hávaði) og tók svo fótinn upp og sá þetta rosalega glerbrot bara stingast útúr skónum. Ég reif það úr og fór úr skóm og sokkum. Gaurinn= "vá"
Ég var samt eiginlega hin rólegasta og sagði bara "ég veit eiginlega ekki hvernig ég á að tækla þessar aðstæður". Hann náði í tissjú fyrir mig, fór í plasthanska og þrýsti á sárið með tissjúinu. Beið eftir að blæðingin stöðvaðist. LOL.. það blæddi ekki lengi en á meðan það blæddi þá blæddi mikið! Allur sólinn í skónum mínum var útí blóði.. ég þurfti að henda sokknum því hann var alveg gegnvotur.. það voru pollar á gólfinu! En svo .. púff, blæðingin stopp. Hann sótthreinsaði, lét á mig plástur og ég fór aftur fram að dansa :D

Ég náði samt að spurja hvað gaurinn héti og hann sagðist heita Arnar. Takk Arnar!

Núna í morgunn er ég nú frekar aum í fætinum, en get svosem alveg labbað..

MYSPACE! Ég er komin með myspace.. og ég geri ekki annað (og það er samt ekkert sem þarf að gera á myspace) þetta er eitthvað svo dáleiðandi ferli. Ég veit það ekki... ég er lúði... but here you go anyway! www.myspace.com/tinnagunnur

» 2 hafa sagt sína skoðun

19.08.2006 09:31:49 / Punky

Menning menning menning..

Menningarnótt framundan. Fyndið.. ég man ekki eftir að hafa séð neitt áhugavert sem gerðist á menningarnótt. Það er einhvernveginn svo mikið af fólki og mikið að gerast að maður fattar ekki alveg hvað er í gangi einhvernveginn.

Ef einhver hefur upplifað eitthvað rosalega menningarlegt (Það að labba í gegnum mannþvögu á menningarnótt telst ekki með sem menningarupplifun finnst mér.. það væri dálítið þversögn einhvernveginn) plís.. do tell!

Árni fór í fyrra og sat á einu horninu með kassagítar og spilaði lögin sín fyrir almenning. Engin söngur og ekkert með. Hann var með bauk til styrktar krabbameinsfélaginu og fékk alveg slatta pening fyrir.
Í ár ætlar hann að taka þetta rafmagnað. Er búinn að taka upp trommur og bassa og ætlar að syngja með (að ég held :S). Ég veit ekkert hvar hann verður, það verður að koma í ljós. Hann ætlar að spila 7 lög.. og ég veit ekki klukkan hvað. Hey ég veit "nánari upplýsingar koma KANNSKI síðar".. ef ég nenni.

Og ég vil óska Ragnheiði til hamingju að vera búin með prófið sitt.. og í tilefni af því hefur hún gerst róni og ætlar að drekka sig fulla og vera það þangað til við förum á Kárahnjúka næstu helgi. Djók.. hún má það ekki, ég held að hún eigi að keyra einhvern hluta af ferðinni.

Heyiði.. bless!



» 2 hafa sagt sína skoðun

08.08.2006 21:36:17 / Punky

Fulli færeyingurinn Jóhann

Is she crazy in bed? 

» 10 hafa sagt sína skoðun

07.08.2006 15:29:43 / Punky

Gleðilegan verslunarmannadag?

Nóg búið að vera að gera þessa dagana. Var núna um helgina með Árna, Örnu R. og Ragnheiði ásamt fleira fólki á Akureyri. Það var svona svona.. skemmti mér ágætlega. fannst eitthvað vanta uppá á stemmarann þarna ef ég verð að vera hreinskilin. Vorum á tjaldstæðinu þarna sem okkur leist nú ekkert á fyrr en við hittum Ara og sagði að það væri pláss þarna hjá honum. Þar var ekki eins mikill umgangur þar og við slógum til. Það var ágætt þarna um kvöldið en fannst eitthvað vanta þegar við fórum niðrí bæ.. var ég sú eina sem fannst maður bara vera kominn niðrí miðbæ í Rvk? Stelpurnar í snípstuttum pilsum og háhæluðum skóm þegar maður var rétt kominn í fílinginn á útilegu. ÆJj... það var eitthvað, kannski var það bara mín hegðun líka sem spillti fyrir sjálfum sér.. :S

En þar seinasta helgi var brjáluð! Ég og Arna fórum saman á Ólafsvöku í Færeyjum. Pöntuðum flug og hostel á fimmtudeginum og flugum út á föstudegi. Arna sá um hostel-pöntunina og ég gerði ráð fyrir að það væri glataða einhversstaðar hinummeginn í bænum (ekki útaf því að Arna pantaði heldur útaf því við vorum svo seinar til) en nei, við fengum bara hostel á besta stað í bænum.. niðrí miðbæ þar sem allt var að gerast!

Hittum fullt af fólki. Ástralann Glen, Íslendinginn Ívar, englendinginn Mark, dönsku stelpurnar Cristina og Anna Louise, frönsku 68 ára gömlu konuna sem leit út fyrir að vera 50 (ótrúlegt!) og marga fleiri sem ég man ekki hvað heita. En þetta var svona hálfgerð kommúna þarna á hostelinu.. ótrúlega gaman.

Það var hellað fyllerí niðrí bæ. Helmingurinn af fólkinu þarna var svo drukkið að það gat ekki staðið upprétt.. haha. En þetta var líka rosalega fallegt. Það er til siðs að vera í þjóðbúning á Ólafsvöku (þetta er víst um einhvern Ólaf Haraldsson sem boðaði kristina trú inní landið fyrir löngu.. ég komst að því eftir miklar leit , það gat enginn svarað þessu!) já þannig maður sá heilu fjölskyldurnar í þjóðbúningnum, ógeðslega flott. Verðið þarna var uppsprengt. Maður t.d. borgaði 300 ísl kr fyrir pulsu.. haha og bjórinn kostaði 600 kr ísl :S En við björguðum okkur.. með því að borga verðið :P

Við hittum fullt af fólki, en mest þó íslendinga og héngum við mest með þeim. Ívar er frá Vestmannaeyjum og hann er óábyrgasti strákur sem ég hef kynnst. Það er spurning hvort Rúnar eða hann séu í fyrsta sæti. Ábyggilega Rúnar samt. Haha.. til að gera langa sögu stutta þá lánaði Arna honum pening fyrir flugfarinu 8 mínútum áður en hann átti að fara uppí rútuna á flugvöllinn. "Ok.. getið þið lánað mér pening? Því ef ég fer ekki núna kemst ég ekki heim næstu vikuna!" -"Nei Ívar.. ég á engan pening" -"Ok. þekkiru einhvern sem á pening. Sem getur lánað þér svo þú getir lánað mér??" ROFL.. hann var fyndinn. Vona að þú hafir skemmt þér vel á Þjóðhátíð Ívar minn.. þú vannst fyrir því :D

Jæja gott fólk. nóg að gera. Núna ætla ég að klára að búa til köku svo við fjölskyldan getum skundað í heimsókn. Sjáumst síðar!

bæ!

» 2 hafa sagt sína skoðun

11.07.2006 23:38:38 / Punky

Góðan daginn frú Tinna

Brúðkaupið... eitthvað sem ég hef kviðið að skrifa um því það er ekki létt að segja frá svona viðburðarríkum degi. En eitt segi ég ykkur í byrjun; það fá engin orð lýst því hve mikil gleði og ást ríkti yfir þessum degi. Þetta var sannkallað draumabrúðkaup fyrir mér.

Við Árni vöknuðum snemma heima hjá ömmu. Hann og Ásgeir fóru og redduðu nokkru fyrir salinn og fóru svo saman á Melstað til að gera sig til og slaka á.
Ég gerði fátt um morguninn annað en að slaka á. Svo fór ég í sturtu og í hárgreiðslu klukkan 13:00 (athöfnin byrjaði 16:00). Anna Sigga mágkona málaði mig og svo fór í kjólinn, skóna og lét á mig skartgripina. Ég var tilbúin :)

Það var margt um manninn samt heima hjá ömmu þar sem ég, mamma, tommi, amma, anna sigga, valgeir, jói, arna, ragnheiður og amma vorum saman að gera okkur til. Það var ekkert mál, enda stórt hús með mörgum herbergjum.

Pabbi kom svo og sótt mig á krem-hvíta cadillacnum. Við náðum í brúðarvöndinn og uppí kirkju fórum við..á mátulegum tíma. Brúðarmarsinn hjá Kolla, Kára og Óla var vonum framar, athöfnin létt og skemmtileg, Arna söng eins og engill, við sögðum bæði já og Arna Ösp var prívat ljósmyndari :) Eftir athöfnina fórum við svo uppí Kirkjuhvamm til að taka myndir. Ég vil taka það fram að frá því ég var lítil hefur mig langað til að gifta mig í þessari kirkju og láta myndatökuna vera uppí Hvammi.. algjör draumur coming tru þarna!

Við fórum svo uppí Hamarsbúð þar allir gestirnir voru mættir og tilbúnir með Kampavín handa okkur og Lófaklapp. Það var æði. Hipp hipp húrra og allt saman :D

Svo var bara þétt dagskrá yfir matnum (ótrúlega gott lambalæri og með því). óteljandi ræður og skemmtileg heit. Glatt á hjalla :)
Í eftirrétt var konfekt, kransakaka og kaffi. Eftir það var svo kastað brúðarvendinum. Híhhíhí´hi... þvílík kvennahrúga á gólfinu. Nóg af ógiftum kvenefni þarna á staðnum greinilega. Arna Rún greip brúðarvöndinn :D.. minnsta kosti á endanum. Hehe

Þegar leið á kvöldið og nokkrir týndust heim.. var bjórinn, tónlistin, hljóðfærin, tjöldin og þægilegri föt dregin fram. Fleiri bættust í hópinn þegar leið á kvöldið og svo var skemmt sér fram á morgunn. Við brúðhjónin laumuðumst reyndar í burtu þegar gleðin stóð sem hæðst, uppí húsbíl ;)

Svo daginn eftir bárum við framm morgunmat handa þunna liðinu og opnaðar voru gjafirnar. Ég segi bara það að mér var nærri bumbult af því að fá þessar gjafir. Ég bjóst ekki við svona miklu! Ég hafði í raun ekki neitt neitt pælt í því! Úff.. en ánægjulegt engu að síður :)

Svo hjálpuðust allir að ganga frá uppí Hamarsbúð og fórum svo í smá ferðalag uppí Hindisvík að skoða selina. Það var magnað að sjá svona marga seli saman í sínu náttúrulega umhverfi. Ótrúlega gaman :) Svo fóru þau lengra að skoða Borgarvirki pg Hvítserk.. en við fórum aftur til baka. Enda marga á Hvammstanga að knúsa og þakka fyrir áður en lagt var af stað heim.

Svo fórum við í Brúðkaupsferð við fjölskyldan til Tyrklands í viku. Ótrúlega gott að slaka á og gera ekki neitt eftir svona mikið annríki seinustu vikurnar. Sólbað-sundlaug-matur-bæjarferð-matur-sofa-sundlaug-sólbað-borða-sofa... svona var þetta. Yndislegt! en stundum of heitt.. alveg 40 stiga hiti :S

Jæja... takk fyrir þá sem nenntu að lesa.. og takk fyrir mig!

Love. Tinna

» 10 hafa sagt sína skoðun

13.06.2006 19:29:49 / Punky

4 dagar to go

 JahÁ... 4 dagar to go og ég er komin með smá hnút í magann. Ég fer norður ekki á morgunn heldur hinn þannig ég hef takmarkaðan tíma til að redda öllu hér í bænum áður en ég fer. Úff..

Árni var steggjaður á Laugardaginn. Hann kom heldur skrautlegur heim um nóttina. Flekkóttur eftir brúnkumeðferð og ótrúlega waisted. Hann á enn eftir að fá fötin fyrir brúðkaupið.. :S

Roger Waters tónleikarnir í gær voru geðveikir.. bestu tónleikar sem ég hef farið á. Ég væri fátækari fyrir vikið ef ég hefði ekki farið á þá. Vá.

Ætla ekki allir að koma í útilegu 17??

Bæjjjó

» 5 hafa sagt sína skoðun

04.06.2006 12:09:09 / Punky

Gæsunin er yfirstaðin

Úff.. hvar á ég að byrja??? Ég fór í vinnuna í gær. Morguninn byrjaði ekki vel því Árni var alltaf að reka á eftir mér (hvað er eiginlega að þér.. klukkan er bara korter yfir níu, !!!!.. átti að mæta hálf tíu í vinnuna). Guðný boss að hringja í mig og segja að fólk og yfirmenn séu að bíða eftir mér niðrí vinnu eftir að ég opnaði. Ég alveg í þvílíkum bömmer því ég hélt að ég væri á fínum tíma. Ég dríf mig eins og ég get niðrí vinnu. Og þar situr Olga (stelpa sem vinnur með mér) á tröppum hjá næstu búð. Ég var ýkt hissa því það var ekki hún sem átti að vera að bíða eftir mér.. og hún segist vera að bíða eftir vinkonu sinni. Ég bara "ok"... og fer inní Tiger.
Svo heyri ég þetta þvílíka bank á hurðinni. Standa þar ekki tveir mótórhjólakappar. Annar með beinagrindagrímu yfir andlitinu og hinn með hjálminn yfir svo ég sé ekki neitt og spurja þegar ég opna "ERT ÞÚ TINNA??""JÁ ÞÚ ÁTT AÐ KOMA MEÐ OKKUR!". Úff... þarna á þessu augnabliki áttaði ég mig á öllu saman. GÆSUNIN!!

Hahahahaha... Olga alveg skellihlægjandi. Þeir rífa mig úr jakkanum.. taka af mér töskuna. Og fara svo að troða mér í einhverjar mótórhjólabuxur sem voru svo þröngar að það var engu lagi líkt..gat varla setið í þeim sko! Já, þeir skella mér aftan á eitthvert mótórhjólið og keyra mig útí gróttu (þeir voru sjö samtals mótórhjólagaurarnir.. Sniglarnir!) Láta mig standa uppá hól og öskra "ég er að fara að gifta mig!!!!!!" Djöfull var heitt í þessum galla maður. Svo taka þeir mig aftur á bak og keyra mig niður í húsdýragarð þar sem stelpurnar taka á móti mér. :haha: Þarna voru Arna Rún, Ragnheiður, Arna Ösp, Guðný, Eyrún, Begga, Helga, Anna Sigga og Lilja. Þegar við vorum búnar að jafna okkur á þessum ósköpum þá létu þær mig fara í kusubúninginn hennar Ragnheiðar (dimmetering) og inní húsdýragarð. Þar fæ ég þær móttökur að ég eigi að fara með skít (af einhverju dýri.. held af svínunum eða eitthvað) sem voru þarna í RISASTÓRUM hjólbörum inní gám. Jæja.. ég tek þessar hjólbörur og fer með þær eitthvert lengst og þar þarf ég að hvolfa þeim inní gám... en fyrst! þarf ég að moka fullt af flór lengra inní gám til þess að koma minni hvolfun inní. Úff.. lyktinn og hitinn voru að gera útaf við mig. Og þessar húsdýragarðsstelpur voru alveg þvílíkt smámunasamar við mig. hahaha.. en það var bara fyndið. Svo létu stelpurnar mig fá korn til að gefa hænunum. (já hliðið var lokað þannig mér var sagt að klifra yfir. Man ekki hvað er langt síðan ég klifraði yfir eitthvað seinast). Og hænurnar flykktust alveg að mér. Líka kalkúninn.. sem er gross by the way.
Jæja. svo fórum við útúr húsdýragarðinum og var þá bundin fyrir augun á mér. Inní bíl, gefið mér að borða (var ekki búin að fá mér morgunmat.. það var hugsað fyrir öllu) svo keyrt eitthvert. Við komum svo út og ég hafði ekki hugmynd hvar við vorum. Heyrði einhverja karlmannsrödd (já komið bara með mér).. úff, hvað voru þær að gera við mig eiginlega?? Þetta var svo skrítið, hljóðið inní þessu húsi var svona eins og í sumarbústað. Svona plankahús eitthvert.. svo var farið með mig aftur út, en ekki í sömu átt heldur út eins og bakdyrameginn. Svo loksins þegar var tekið af augunum á mér þá stóð ég fyrir framan flugvél (ég var ýkt lengi að átta mig á þessu samt fyrst.. hehe.) ÉG FÉKK HÁLFTÍMA ÚTSÝNIS FLUG :D Það var ýkt gaman.. hann gerði ýmsar kúnstir líka. Mér leið eins og ég rússíbana oft. Hahahaha... ég fór útá bessastaði og útí Heiðmörk.. yfir æskuheimilið mitt. Jæja.. stelpurnar tóku svo, auðvitað, á móti mér þegar ég var lent og leyfðu mér að lýsa þessari lífsreynslu minni. Jæja.. ég fékk að fara úr kusubúningnum en enn og aftur var bundið fyrir augun mín. Ég keyrð eitthvert og farið inn með mig.
Það var svona dropa hljóð og fuglahljóð þarna inni. Var ég inní blómaval eða eitthvað? bara ekki... því það var svo hljótt þarna. Ég látin setjast á einhvern bekk og tekið af mér trefilinn. Ég var inná snyrtistofu. Ég hélt ég þyrfti að vera hrædd, ég sá trimform apparat, og vax apparat. Ég var orðin smeik :S Svo kom einhver kona inn sem var kínversk. Nálastunga? Stelpurnar fóru út og sögðu mér að slappa af. Nei þetta var ekkert trimformsvaxnálastunga neitt. Heldur andlitsbað. Og það var ýkt notalegt. Ég sofnaði ég stólnum og allt. Þarna var ég í ábyggilega klukkutíma. Svo þegar ég var búin sagði hún mér að fara út að setjast í sólina. Þegar ég var búin að sitja í c.a. mínútu kemur limmósía keyrandi. Þá sagði kínverska konan "þarna kemur þinn bíll". Og ég trúði henni samt ekki.. þangað til kallinn kom og spurði um Tinnu og hleypti mér inn.
Stelpur! Jiii.. þið eruð svo ruglaðar
Jæja.. limmósían keyrði mig til Örnu Aspar. Þar var grill og trampólín og allir í góðu stuði. Anna Sigga stóð við grillið og grillaði hamborgarana. Jii og ég held barasta að þetta hafi verið besti borgari sem ég hef smakkað :D Eftir smástund kom Arna með tvo hesta og leyfði mér að sitja á baki í smástund. Þar var líka hressandi.. og ég var bara ágætlega fegin að þetta hafi ekki verið lengra þar ;) Er kannski ekki mikil hestakona.
Eftir að hafa sötrað bjór og slakað á í nokkurn tíma var drifið sig af stað aftur. Bundið fyrir augun á mér aftur og ég sett í pollagalla. Og inní bíl og keyra af stað aftur (uppáhalds hlutar dagsins. Þegar það var verið að keyra með mig í heitum göllum með bundið fyrir augun :|). Jæja.. ég var sett í bát. og tekið frá augunum. Ég var á ystu brún í einhverjum leik-gúmmíbát á TJÖRNINNI Í REYKJAVÍK. Jii... þvílíkt og annað eins hugmyndarflug í stelpunum. Þvílíkt moj að koma mér í bátinn in the first place.. og ég snéri öfugt fyrst. Missti háfinn sem ég átti að veiða fuglana með. Náði honum aftur. Í land.. þær snéru mér við í bátnum og sögðu mér að róa hinum meginn við bakkann (HINUM MEGINN VIÐ BAKKANN!!!!) og segja fólkinu að ég væri gæs og vildi endilega fá brauð. Þetta gerði ég.. dáldið smeyk þó. Hvað ef ég myndi sökkva. Allt útí andarkút. Ojj... og á tímabili hélt ég að ég gæti ekki meira. Var orðin svo þreytt í höndunum... but I made it. Og þegar á hinn bakkann var komið var ég svo blaut á rassinum! En stelpurnar hugsuðu fyrir öllu og komu með aukaföt handa mér :)
SVO var sett á mig vængi, kórónu og gefið mér sprota. Svona var látið mig labba niðrí bæ. Þessi búningur fannst mér verri en allir búningarnir. Kusubúningurinn, regngallinn og mótórhjólabúningurinn til samans! Þær gáfu mér langþráðan kaffibolla. Svo var dáldið mysteríus glott komið á Örnu. Hún sagði það sem væri næst á dagsskrá væri eitthvað sem ég réði hvort ég gerði. Hhehehe.. hún lét mig fá fullan poka af pokum með efnum í. Te í poka, flórsykur í poka, og gervisykurstöflur í poka. HAHAHAHAHA... þetta átti ég að selja til þess að ég safnaði í brúðkaupssjóð... :^) And off I went. Fólk tók svona misjafnlega í þetta en á endanum græddi ég alveg 1000 kall! Mér fannst þetta ýkt gaman :D Ég fékk líka gefins ís vegna þess að ég var að fara að gifta mig.
Næst var ferðinni heitið heim til Beggu að borða. Við tókum subway samlokur meðferðis og allir fengu sér í svanginn. Þegar ég var búin að borða fékk ég að fara í sturtu. AHHHHH.... ýkt gott. Langur dagur og ég sæl og glöð, hrein og fín, máluð og sæt. Hera og Alda bættust í hópinn á meðan ég var í sturtu. Það var farið í sing-star og drykkjuleik.. svo þetta almenna fyllerístjatt yfir sígó :D Enn einmitt þegar ég kom inn af svölunum úr einu slíku beið eftir mér kaka og pakki á borðinu. Alveg ýkt flott kaka.. tippakaka. Með lituðu smjörkremi! Namm, hún var ýkt góð. Og svo í pakkanum var (þori ég að segja það? :^) ) Júúú.. það var bleikur víbrador. Hahahahhaha... við vorum allar bölvandi yfir því að ekkert batterý var til á svæðinu til að sjá hvernig hann virkaði greyið. Það verður að bíða betra bloggs til að fá að vita hvernig hann virkar. Jii.. það var drukkið meira og farið svo niðrí bæ.
Ég kom svo heim klukkan 16:30 eftir hvað... 16 tíma prógramm. Þetta var svo gaman að ég á aldrei eftir að gleyma því.


Ég á eiginlega ekki til orð til að lýsa því hvernig þessi dagur var í gær. Ég hefði aldrei búist við svona miklu. Ég hefði aldrei búist við svona löngu. Ég bjóst ekki við svona ótrúlegu prógrammi. Ég er alveg orðlaus og þakklát og glöð í hjarta mínu að það eru svona margir sem vildu og gátu tekið frá sinn tíma og vinnu í að láta þennan dag vera sem "ánægjulegastan" fyrir mig. Arna ég veit að þú lagðir extra mikið á þig líka.. takk!

TAKK!

» 10 hafa sagt sína skoðun

02.06.2006 10:53:33 / Punky

Heimasíðan hans Jóa

er búin að vera lokuð um tíma.. útaf því ég hef ekki borgað árgjaldið. En ekki lengur

Myndir eru væntanlegar

» 1 hafa sagt sína skoðun

02.06.2006 09:45:14 / Punky

Jói er lasinn

Ég var að skipta á honum. Kúkableyja. Ég held alltaf, þegar ég skipti á honum, svona um ökklana á honum.  Hann var núna að reyna að losa sig.. ekki bara með því að spyrna í mig heldur AÐ LOSA UM TAKIÐ hjá mér með því að toga í puttana. Ég alltaf að reyna að segja honum að hætta og vera stilltur en hann heldur alltaf áfram "mammmma.. hættu" með þessari viskírödd sem hann er með (veikur) og ég endaði bara í hláturskasti. Ég búin að vera þarna að reyna að brasa þarna einbeitt á meðan krakki með viskírödd er að losa um puttana á mér. Þetta voru bara absúrd aðstæður... við misstum okkur bæði í hláturskasti. 

» 1 hafa sagt sína skoðun

02.06.2006 08:14:32 / Punky

15 dagar to go!

Ég er að fara til Tyrklands.. nanananabúbú! :P

» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4
Dagatal
mars - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031
FyrriNæsti
Leitarbox